miklu fyrr....!!!

Réttara væri að segja um 6 ára aldur. Því börn með fötlun fara í svokallað skólamat árið sem þau byrja í fyrsta bekk grunnskóla og eftir það mat eru þau útskrifuð af Greingarstöð ríkisins. Punktur. Síðan gerist ekkert meir. Ef barnið þitt er ekki í talþjálfun eða iðjuþjálfun osfrv. þá er enginn sem fylgir því eftir inn í unglinga- og fullorðinsárin ef foreldri gerir það ekki. Sjálf er ég með fatlað barn sem var "útskrifað" af eftirfylgni fagfólks árið sem hún byrjaði í 6 ára bekk. Hún hefur ekki þurft á neinni utanaðkomandi aðstoð að halda s.s. þjálfun oþh. en ég stóð í sömu sporum með að vita hverjir vitsmunir hennar voru um 12 ára og þegar hún var 5 ára!

Ég fór því fram á e-s greiningu á BUGL og var niðurstaðan þar að hún væri verulega greindarskert en í framhaldi af þeim úrskurði þá hefði átt að senda hennar mál áfram til Greiningarstöðvar ríkisins en það var ekki gert. Svo líða árin og núna er hún að byrja í menntaskóla næsta haust og fyrir minn tilstuðlan þá óskaði ég eftir nýju mati til að það gæti fylgt henni inn í menntaskólakerfið svo hægt væri að óska eftir þeirri þjónustu sem hún kæmi til með að þurfa inn í skólann, þ.e. stuðningi. Eftir það mat kom í ljós að hún er á aldursbilinu 4-6 ára en lífaldur er á 16. ári.

Ég vil einnig koma því á framfæri til foreldra ungra barna með fötlun að þegar stúlkan mín var á leikskóla þá var hún greind þar með ADHD (athyglisbrestur með ofvirkni) en þar sem fagaðilanum þar fannst ekki þörf á "einum stimpli enn" eins og það var orðað, þá var hún ekki skráð í "kerfið" sem einstaklingur með ADHD. Ef það hefði verið gert, þá hefði það hjálpað henni í skólakerfinu því börn með ADHD þurfa mjög hnitmiðaða kennslu og jafnvel stuðning inn í bekk (líka þau ófötluðu með ADHD). Þannig að ef barnið þitt fær einhverja greiningu, láttu þá skrá hana í pappíra barnsins.

Góðar stundir Smile


mbl.is Er pláss fyrir unga fólkið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að vera í "hættu"

Ég hélt í fávisku minni að þegar rætt er um að eitthvað sé í "útrýmingarhættu" þá beri að varðveita það og gera hvað sem er til að svo verði ekki ?? Ég skil ekki alveg svona orðalag.
mbl.is Ný tegund barnaníðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband