Á eftir !!

Ég er komin með svo mikinn fiðring. Hvað haldið þið að Jón hafi spurt mig! þessa flughræddu að í morgun? "Mamma er hætta á því að við hröpum?" Halló, maður spyr ekki svona, svo ég sagði honum að það væri meiri hætta á að lenda í bílslysi en flugslysi.

Tinna Rós situr og horfir á Múminsnáðan, hún er búin að raða í 3 litlar handtöskur s.s. videospólur, teppi, bækur ofl. sem ég ætla ekkert að pikka úr fyrr en rétt áður en við förum í bílinn. Þá fær hún að velja eina sem við röðuðum í í gær.

Fjóla Dögg skellti sér í Smáralindina til að fá sér að borða á Serano þar sem hún er að vinna. Henni finnst greinilega of langur tími þar til hún fær "baunapönnuköku" næst.

Bogga Dís var að koma í hús, hún er að flytja inn með allt sitt hafurtask sem fylgir 4urra manna fjölskyldu á leiðnni í "bústaðarferð"

Jón minn situr bara og spilar PSP, það tók hann klukkutíma að klæða sig, ein flík á korteri sirka. Hann er svo rólegur yfir þessu öllu saman.

Jæja kossar og knús til fjölskyldu og vina, heyri í ykkur síðar. XXX


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða ferð kæra fjölskylda og skemmtið ykkur nú vel. 

Kv. Kolla, Bjössi og Daníel

Kolla (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 12:45

2 identicon

Ég bíð spennt eftir að fá að fylgjast með ykkur í Ameríku!  

Kv. Svafa

Svafa (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband