9.4.2008 | 13:43
Dagur 5
Orlando - miðvikudagur 9. apríl
Hæ allir heima, frábært að sjá hve margir eru að fylgjast með okkur. Erum búin að fá okkur morgunmat á
Panera og erum að skella okkur í Busch Garðinn. ATHUGIÐ að veðrið er frábært, ekta Florida veður
sól og hiti.
Heyri í ykkur síðar, kveðja frá okkur sem erum að fara í Safarí!!!!
xxx
Athugasemdir
Hæhæ
Gott að sólin er farin að skína á ykkur. Nú er hún líka farin að skína á okkur og vinnur vonandi bráðum á öllum þessum snjó!!
Kv. Kolla og co.
Kolla (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 14:45
Hér í höfuðborginni var jafnfallinn 10 cm snjór í morgun svo ég öfunda ykkur af veðrinu - og vorkenni ykkur ekkert að fá smá rigningu stöku sinnum! Sindri varð að vísu voða glaður að sjá allan þennann snjó, sagði að það væru komin jól... og setti skóinn út í glugga
Kveðjur frá ÍSlandi - Svafa og Sindri jólasveinn
Svafa (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 17:27
hæ hæ
flott ameríkumynd, en ég vil fleirri svo maður geti verið með ykkur (þá dagin eftir hehe).
jújú hér snjóaði líka í dag og nú ligg ég undir sæng og skoða slóðirnar þínar.
kveðja frá okkur
Alma (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 21:12
Það verður gaman að heyra frá ykkur eftir Busch gardens..
allir rússíbanarnir sem Fjóla og Nonni eiga eftir að fara í og kannski þú verðir svona eins og ég að , bíða bara með skottuna meðan Konni fer með í þessar líka ógnvænlegu græjur..Nema þú þessi flughrædda snúir við blaðinu og takir þetta líka með trompi !
Já þið missið ekki að neinu vorveðri hér..það er á hreinu.
Bíð spennt eftir næsta bloggi.
Mundu að ef þú vilt fara í Michaels, þá er það opið til kl. 22 á kvöldin...
þú sérð ekki eftir því föndurkonan sjálf..
Bestu kveðjur frá öllum hér
p.s. Svafa og Kolla , það er bara blogghittingur hér á hverjum degi ! bestu kveðjur til ykkar lika
Kv.
Elva og co.
Elva (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 22:55
Gaman að heyra að veðrið sé betra. Öfunda ykkur feitt, alltaf gaman í vinnunni :)
Ester (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 10:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.